my life as a light bulb

Saturday, August 11, 2007

Prinsessan lætur biða eftir ser

Jæja, þá er kominn 11. ágúst og litla systir er búin að láta bíða eftir sér í 4 daga, en hún hlýtur nú að fara að koma. Við fjölskyldan erum búin að vera hjá Nönnu frænku og Jón frænda að bíða eftir komu nýjasta fjölskyldumeðlimsins og er hún Didda frænka búin að vera rosalega dugleg að passa mig og kenna mér hinar ýmsu kúnstir ;o)

Ég er líka búinn að vera í fríi frá dagmömmunni minni í þrjár vikur núna og byrja svo í leikskólanum þann 20. ágúst svo þá verð ég með öllum stóru krökkunum á Skógarlandi :o) Það verður sko ekki leiðinlegt...

Svo stefna mamma og pabbi á langt frí hjá allri familíunni úti á spáni einhvern tímann yfir jólin og Janúar, því þá eignast ég nefnilega nýja/n frænku/frænda. Þá verða komin 3 stykki nýrra barna í skyldmannahópinn á bara nokkrum mánuðum, því hann Sigurjón frændi og Oddný frænka eignuðust svona rosalega sæta stelpu í júní. Það virðist vera von á kvennaveldi :oO

Annars eru bara góðar fréttir af okkur lille familien hérna í góða veðrinu fyrir norðan og höldum áfram að bíða...
Mamma lætur vita þegar litla systir verður komin í heiminn....

2 Comments:

At 1:08 PM, Anonymous Anonymous said...

Hæhæ!
Mikið er gaman að heyra að fjölskykldan sé að stækka :)
Vona að allt gangi vel hjá þér Dagný mín.
Kveðja Eygló

 
At 11:24 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með lilluna :) Cið hlökkum til þegar þær geta farið að leika sér saman dömurnar ;)

 

Post a Comment

<< Home