my life as a light bulb

Saturday, December 03, 2005

20 dagar síðan ég kom í heiminn !

Já, nú er ég orðinn rétt tæplega 3ja vikna gamall ! Og stækka sko óðfluga... í seinustu heimsókn frá hjúkkunni þá mældist ég 3,4 kg !! Búinn að þyngjast senst um 600 gr. á 2 & 1/2 vikum !! Hjúkkan okkar hún Auður kemur svo aftur að mæla mig eftir 2 vikur, það verður gaman að sjá hvað maður verður orðinn stór þá :o)
Svo kom þessi fína stelpa sem er hjúkrunarnemi í heimsókn til okkar á miðvikudaginn og kenndi mömmu og pabba ungbarnanudd, það verður nú ekki leiðinlegt að fá eitt svoleiðis endrum og eins ;o) Jæja, hér fljóta með 2 myndir, fyrsta skiptið sem ég fékk að fara í fína ömustólinn minn og svo líka mynd frá því þegar ég fékk að fara út í fyrsta skipti um daginn.... jú jú, ég er þarna einhvers staðar undir öllum fötunum :o)
Svo er rosa gaman að skoða umhverfið úr þessum fína útsýnisstól !

Houston we have a problem !

4 Comments:

At 9:01 PM, Anonymous Anonymous said...

Flottur!
Biðjum að heilsa :)
Frændi og frænka á Eskifirði

 
At 1:47 AM, Anonymous Anonymous said...

oooooooooo hvað hann er sætur og sætur. Fyrirgefðu hvað ég er búin að vera upptekinn, prófin eru að byrja og ég hef verið að skila verkefnum. Ég kæfi ykkur úr knúsi eftir prófin..

 
At 8:44 PM, Anonymous Anonymous said...

Það er allt í lagi.... fáðu bara Mega góðar einkunnir fyrir okkur ;o)

 
At 11:16 AM, Anonymous Anonymous said...

Hann er æðislegur, flott hvað gengur vel með litla kút.
Kveðja og knús Eygló

 

Post a Comment

<< Home