my life as a light bulb

Tuesday, February 21, 2006

Mánuði seinna.....

Jæja, nú hunskaðist hún mamma loksins til að setjast niður fyrir framan tölvuna og skrifa nokkur orð. Það er kominn allt of langur tími síðan hún henti inn einhverjum myndum, en svo er nú mál með vexti að hún er liggur við alveg hætt að taka myndir af mér. Er alltaf bara að taka einhver myndskeið af mér. Ég er nebblilega farinn að hreyfa mig svo mikið... ligga ligga lái :oP
Ég er t.d. farinn að snúa mér á magann þegar ég er að leika mér á gólfmottunni minni, svo er ég farinn að teygja mig í þau leikföng sem mig langar í (og reyni að smakka aðeins á þeim). Eins og er, er gíraffinn sem hún Ísabella valdi handa mér í uppáhaldi.
Svo er ég líka farinn að hjala alveg á fullu og skríki af ánægju þegar mamma eða pabbi geyfla sig framan í mig :o)
Ég fór svo í 3. mánaða skoðun í seinustu viku (já, ótrúlegt en satt þá er ég orðinn 3. mánaða !!! Time flies !!) og var útkoman alveg með ágætum. Ég held mig vel á minni kúrfu í hæð (60,5 cm), þyngd (5.505 gr.) og höfuðstærð (40,5 cm). Svo sagði hjúkkan mér að ég væri bara alveg ótrúlega sperrtur og myndarlegur og að börn byrjuðu yfirleitt ekki að snúa sér á magann fyrr en 4-5 mánaða. Svo ég er bara nokkuð ánægður :o)
Hérna eru svo nokkrar myndir að lokum:
Maður heldur að maður sé orðinn nógu stór til að standa upp úr stólnum !

Hér er ég að leika mér á teppinu sem ég fékk frá Afa Bigga og Sibbu.


Ein buslumynd með pabba :o)


Kominn í nýja ömmustólinn sem ég fékk frá Önnu frænku & co. :o)


5 Comments:

At 8:52 AM, Anonymous Anonymous said...

Por favor unas palabritas en español. Jorge nos tiene desatendidos y me muero de ganas de que cuentes cositas. Está enorme el tío.
bueno, un beso para los tres
elena

 
At 1:41 PM, Anonymous Anonymous said...

Hæhæ!
Hann Gabríel er algjör sjarmör.
Bestu kveðjur til ykkar
Eygló

 
At 11:36 PM, Anonymous Anonymous said...

hæhæ-hann er nú orðinn bara stór og algjört krútt :D -við Sara förum að kíkja fljótlega á ykkur :)
Rósa

 
At 7:50 AM, Anonymous Anonymous said...

hann er orðinn skuggalega líkur þér Dagný:)

 
At 1:11 AM, Anonymous Anonymous said...

Segðu... ég sagði ykkur að hann væri "mini-me" :o)

 

Post a Comment

<< Home